Myndir!
Aðrar síður
11.07.2008 16:30:16 / helgz

Komin heim!


Jæja! Þá er maður bara kominn heim aftur....þessir 5 mánuðir voru ansi fljótir að líða 8|
Erum komin aftur í sveitasæluna á Hvanneyri...fengum íbúð þar...á annari hæð...gladdi Hólmgeir mjög mikið að þurfa bera allt draslið upp :d Svo byrjaði hann bara að vinna daginn eftir að við komum heim...voða duglegur! Ég er hinsvegar enn bara að dunda mér heima...búin að vera taka upp úr kössum og koma okkur fyrir...og vá hvað maður á mikið drasl! En svo fer ég vonandi að byrja á verkefninu mínu fljótlega...
Er búin að borða yfir mig af Kókó Puffsi í vikunni....alveg búin að bæta upp þessa seinustu 5 kókópuffslausumánuði...fer örugglega bráðum að líta út eins og eitt Kókó Puffs 8|
Fórum um seinustu helgi í bæjinn til að steggja & gæsa Ingu & Snorra...það var stuð...skruppum svo aðeins út á lífið á eftir :)
En já...það verður samt örugglega alveg nóg að gera á næstunni....mammz og kó eru að koma í dag eða á morgun...brúðkaupið þeirra Ingu & Snorra um næstu helgi...svo kemur Ástan mín...svo er versló og þá brunum við hjú norður í smá tíma...nóg að gera þar líka!

Allavega....bara láta vita að við erum komin heim....og þar með er ég hætt að blogga! Nenni þessu ekki lengur...ef þið viljið vita hvað við erum að bardúsa...endilega bara heyra í manni eða kíkja í heimsókn...við bítum ekki...seinast þegar að ég vissi allavega... :haha:

Takk fyrir og bless!
Helga


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.06.2008 11:16:06 / helgz

Ís....mig langar í ís!


Úff núna liggur maður bara í leti...sem er svosum bara ágætt...svona í nokkra daga.
Erum enn að drepast úr hita...er alveg viss um að ef ég væri planta þá væri ég svona típísk arktísk planta sem þolir vel allan vetrarkulda en gjörsamlega hatar mikinn hita á sumrin 8|
Maður verður líka svo þreyttur af þessari sól...og latur!
Fórum í gær til Hamar þar gerði ég neyðarinnkaup í H&M...stuttbuxur, hlýrabolur & sandalar!
Skoðuðum svo bæinn...hann var voða fínn...fórum svo niður á strönd...þar var alveg hellingur af fólki að sóla sig...við gerðum tillraun til þess...stoppuðum nú ekki voða lengi þar :)
Og jájá...var svo ekki bara ísbjörn heima....allt að gerast þegar maður er í útlöndum auðvitað..vorkenndi nú greyinu hálfpartinn...held að það hefði nú verið hægt að finna einhverja aðra lausn en að drepa bangsa svona í skyndi...en byssumennirnir voru afspyrnu glaðir...það eru þá einhverjir glaðir yfir þessu.
Hey já! Svo er pósturinn aftur með vesen núna..ekki nóg að hann hafi verið með vesen í vetur í sambandi við tölvuna hans Hólmgeir. Núna ætlaði móðir mín að vera svo hugguleg að senda mér íslenskt nammi...og gerði það fyrir ammælið mitt...en nei það er ekki enn komið. Þannig að við fórum nú að undrast þetta og hringdum í póstinn. Þá er nammið bara fast í tollinum í Osló vegna þess að það er bannað að senda matvörur á milli landa....kommon! Það senda allir nammi milli landa og persónulega finnst mér nammi ekki vera matvara...en svona eru víst reglurnar. En hinsvegar var móðir mín spurð að því hvað var í pakkanum þegar hún sendi hann og konan í póstafgreiðslunni sagði ekkert við þessu og skrifaði meira segja CANDY utan á pakkan...svo mamma hélt auðvitað að þetta væri þá í lagi...hefði blessuð konan ekki átt að segja henni frá því að þetta væri bannað...ég meina...mamma vissi ekki að það mætti ekki senda nammi á milli...pufff barasta! Svo kostaði alveg morðfjár að senda pakkann og mamma fær ekki heldur endurgreitt...svo núna eru tollmennirnir í Osló örugglega að éta nammið mitt og mamma borgðaði 4.300 kr fyrir það....takk fyrir! Er frekar fúl...kannski aðallega því þetta var jú súkkulaði :lol:
En já...ætlaði svosum bara að láta við að við erum enn hálf lifandi ennþá :)

Knus & Klem
Helga





» 5 hafa sagt sína skoðun

30.05.2008 14:00:28 / helgz

Sumarfrí!


Skólinn er búinn!!!!!!!!!
Seinasta prófið í dag...jibbí! Núna get ég slökkt á heilanum í smá tíma :) Hann er alveg við það að bráðna...og ekki bætir úr því að að er svo heitt úti...alveg eins og gufubað...þannig að hann er að bráðna enn meira...púfff.
2 stelpur í bekknum mínum fóru heim í dag...frekar fúlt...svo fer önnur á þriðjudaginn..þannig að þetta fer allt að taka enda. Mér finnst nú samt ekki vera svo langt síðan að við komum hingað :s
En það er einn mánuður eftir...maður verður bara að nýta hann vel...ætlum að reyna ferðazt eitthvað og hafa gaman. Svo er það bara Hvanneyri aftur...sama gamla lífið aftur...Hólmgeir fer að vinna og ég fer að vinna í BS verkefninu mínu þangað til að skólinn byrjar. Hlakka samt pínu til að hitta allt skemmtilega fólkið heima...en fæ samt ekki að hitta Ástuna mína því hún verður farin til Ameríku að hitta ástmann sinn þar...og kemur ekki heim fyrr en í ágúst...en þá hitti ég hana :)
En já...get ekki hugsað meira...alltof heitt...ætla fara borða súkkulaðibúðing :haha: namminamm!

Kv. Helga með sólsting


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.05.2008 10:39:12 / helgz

Sól sól skín á mig....


Jæja...unnum ekki júró þetta árið...kannzki næst :) auðvitað var haldið júrópartý í tilefni dagsins...mér fannst nú samt Finnland og Spánn bezt :d
Nóg um júró...er að vinna í því að henda myndum inn...verða komnar inn á eftir :) tókum reyndar ekki svo margar myndir í Osló því það var svo kalt...það var ekki hægt að taka hendurnar upp úr vösunum til að taka myndir...en það tókst í smá stund þegar sólin kíkti aðeins.
Á föstudaginn fórum við svo í túristaferð...það var hópur af túristum hérna og þeir voru að fara skoða gjá sem heitir Jutulhogget og er hérna nálægt...og við fengum að bruna með í rútunni.
Það var fínt...svona utan við grenjandi rigningu allan tímann...þannig að maður var blautur og kaldur.
Erum svo að fara brasa eitthvað með fiska í næstu viku...netveiðar og eitthvað svoleiðis..svo er bara seinasta prófið á föstudaginn næsta og þá er skólinn bara búinn...jibbí! :lol:
En það þýðir líka að við förum að fara heim...og sumar stelpurnar eru að fara strax heim á föstudaginn...sem er frekar fúlt :( En við ætlum að reyna vera duglegar og hafa hitting næstu sumur í löndunum okkar...held að við byrjum á Sviss...þannig að við erum að fara þangað á næsta ári ;)
Svo styttist í að mammz og kó komi í heimsókn...og svo pabbz líka...þannig það verður brjálað að gera í júní...er að reyna sjóða saman ferðaplan fyrir þau núna :) erum allavega að fara í dýragarð til að sjá hreindýr....sem stinga eins og býflugur! 8| ..allavega segir Unnur það :) ég hef ekki enn séð brjáluð hreindýr sem stinga mann....en hver veit...
Hmmm...er að spá í að fara sleikja sólina aðeins með hinum helmingnum mínum...já...sólin er komin aftur eftir viku frí 8)

Hilsen....Helga


» 3 hafa sagt sína skoðun

20.05.2008 18:37:26 / helgz

Komin frá Osló!

Halló

Erum komin aftur í sveitasæluna...en Osló var samt voða fín.
Brunuðum semsagt þangað á föstudaginn með vini okkar...en komum frekar seint þannig að við gátum ekki túristast neitt...þannig að við fórum bara á djammið.
Ójá...djamm í Osló...það er sko spari...maður þarf að vera búinn að spara peníng í mánuði til að hafa efni á því 8| tókum neðanjarðarlestina niðrí bæ svo það kostaði ekkert en bjórinn á barnum var dýr...svo var maður svangur eftir þetta eins og venjulega og við ákváðum að fara bara á burger king og það var dýrt!(2 hambó tilboð kostuðu rúmar 4.000 kr!) svo þurftum við að taka leigubíl heim og það var sko DÝRT!!!
En jájá...það var samt gaman...sé ekki eftir því...fyrsta skipti sem ég fer á skemmtistað og get hlustað á uppáhaldstónlistina mína allan tímann...það var meira segja verið að spila Dimmu Borgir:)
En svo á laugardaginn var þjóðhátíðardagurinn og þá var allt auðvitað lokað...þannig að við fórum bara að horfa á skrúðgönguna sem var RISA stór...svo fórum við að konungshöllinni og þá var hele kóngafamelíen úti á svölum að vinka...við vinkuðum bara á móti ;)
Svo vorum við bara að labba um miðborgina og niður á Akersbrygge...þar var alveg hellingur af fólki...skoðuðum garða...semsagt löbbuðum helling...enda voru lappirnar alveg dánar eftir daginn þannig við fórum bara heim til vinar okkar þar sem við gistum og gláptum á sjónvarpið.
Svo á sunnudaginn fórum við í fleiri garða og ætluðum að fara á 2 söfn en eitt var lokað og svo komum við of seint í það seinna því það átti að loka eftir 15 mín...svo við nenntum ekki að hlaupa í gegnum það á svo stuttum tíma...förum bara seinna :d
Seinna fórum við svo í bíó....alveg risa bíó...það var svona eins og colosseum og alveg risa tjald...og það mátti koma með sitt eigið nammi í bíóið...skrítið..en allavega þá fórum við auðvitað í sjoppuna hliðina á bíóinu sem var auðvitað ódýrari en bíóið og viti menn!...við fundum íslenskt nammi!...Freyju draum...djúpur & hitt....pínu skondið :)
Svo tókum við nætur rútuna aftur heim um kvöldið og planið var að sofa á leiðinni því við komum ekki heim fyrr um 2...en nei...kallinn sem sat fyrir aftan okkur hraut allsvakalega og gaf frá sér hin ýmsu hljóð...oft vissi ég ekki hvort hann var sofandi eða ekki 8| og lyktin sem kom út úr honum..púff...hann getur örugglega drepið mann með henni...við vorum alveg að kafna!
Já...Osló er fín...
Þessi vika í skólanum er búin að vera mjög krefjandi...eða hitt þó...erum búin að vera telja elgskúk 8| og verðum að því næstum alla vikuna...ekkert voða gaman...reyndar erum við eiginlega meira að skoða tréin en elgskúkinn....
Í kvöld er svo júróvísjónpartý I :) við útlendingarnir hittumst áðan til að undirbúa okkur...vorum að föndra fánana okkar...svo bættust við tveir gaurar frá Skotlandi um helgina þannig að við erum orðin mjög interrnatssjónal :) verðum alveg kreisí í kvöld & fimmtudaginn & laugardaginn yfir júró!

Sko hvað við erum flínk!
...og ég sá snák í dag!...labbaði reyndar næstum því á hann...tók ekkert eftir honum ég var eitthvað að glápa út í loftið...allt í einu öskraði stelpan fyrir aftan mig á mig að ég mætti ekki stíga á hann því hann er eitraður 8|...en hann beit mig ekki...það er sko ekkert grín að vera labba í skóginum...snákar og FULLT af maurum! þeir eru sko allstaðar...og mér finnst þeir ekki skemmtilegir...ætla ekki að taka þá með mér heim...eðlurnar eru í lagi...en jörðin er oft alveg iðandi í maurum...alveg ógeðslegt.
...jæja...ætla fara gera mig reddí fyrir júrópartí :haha:

Kv. Helga...komin með leið á elgskúk...


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.05.2008 14:06:52 / helgz

Osló!


Skellti inn nokkrum veislumyndum....
Bara eitt próf eftir..jibbí!...
Er komin með tómataæði...
Þjóðhátíðardagur á morgun...
Farin til Osló! :)

Kv. Helga stórborgardama


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 21:22:31 / helgz

Próf....eitthvað úr helvíti...


Mjög mikilvægt að blogga núna....próf á morgun...allt betra en að læra :haha: Þetta verður því stutt og hnitmiðað.
- Seinasta vika fór í lærdóm.
- Fór í próf á föstudaginn...náði því...sleikti svo sólina eftir það.
- Laugardagur fór í leti dauðanz...þurfti að vera inni allan daginn því ég ofhitnaði vegna óþarflega mikils varmaflutnings frá sólinni...fórum síðan í mat um kvöldið hjá vini okkar...og þar var borðað óbærilega mikið.
- Á sunnudaginn bakaði Hólmgeir afmæliskökuna sína...ég hjálpaði auðvitað...aðallega með smökkunina :haha:
- Um kvöldið var svo ammælisveislan...mikil gleði mikið grín...dreypt var á öli fram eftir nóttu...ammælissöngurinn var alþjóðlegur...
- Mánudagurinn var pínu þreyttur ;)...skrítið...fórum út að borða í tilefni dagsins...splæstum okkur í pylsum...ekki ónýtur ammælismatur.
- Er komin með ógeð af maurum...þeir eru útum allt...ætla ekki að taka þá með heim...er meira fyrir eðlurnar...þær eru svo litlar og saklausar.
- Styttizt í jólin...
- Er komin með hundaveiki...langar pínu í eitt stykki.
- Ætla halda áfram að lesa um norska skógarsögu...jeijj!

Kv. Helga...með gula baun í höfðinu

» 6 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 14:27:11 / helgz

Afsakið hlé...


Jæja ætli ég verði ekki að drita einhverju niður hérna...er ekki búin að vera dugleg við það :|
Er alveg að verða búin að ná mér eftir skíðaferðina...
Sá fyrsta froskinn minn um daginn...hann var fyrir utan eldhúsgluggann minn :)
Sá líka fyrsta íkornann minn í dag...hann var skoppandi fyrir framan skólann...
Svo er hellingur af stórum fiðrildum hérna...alltaf að fljúga á mann.
Jóhanna er komin með nýtt pústurrör..þannig að nú heyrist ekki múkk í henni ;)
Það var risa partý hérna á seinasta miðvikudag...svona hálfgerð útskriftarveisla þar sem öllum var boðið. Fyrst var matur...alveg risa hlaðborð...er ekki viss hvað ég var að borða...en veit að ég smakkaði elg, rádýr og einhvern bleikan fisk.
Svo var auðvitað skálað á 5 mín fresti þannig að flestir voru svona hálf kenndir. En eftir að hafa borðað á sig gat var haldið á barinn þar sem veislan hélt áfram....og þá var drukkið meira...bjórinn var meira segja á útsölu :) Svo var hljómsveit að spila og rassinn hristur langt fram á nótt...endaði svo með því að horfa á Ronju Ræningjadóttir með vini okkar :d
Annars bara búið að vera rólegheit hjá okkur...ég á víst að vera læra fyrir próf núna :s
Er að fara í próf á föstudaginn...voða gaman...
Bíðum svo spennt eftir júróvísjón...ætlum sko að halda upp á það fyrst við erum frá svona mörgum löndum...verðum alveg kreisý með íslenska fánann málaðan í andlitinu! 8|

Jájá...ætla fara læra meira....

Kv. Helga

» 5 hafa sagt sína skoðun

25.04.2008 18:37:53 / helgz

Gleðilegt sumar!


Og þá er komið sumar! 8| Allt að gerast!
Ekki mikið búið að gerast hér samt...vikan búin að vera frekar róleg og hefur einkennst af tedrykkju og sólarglápi.
Vorum í fríi í skólanum á mánudaginn og fimmtudaginn...og hina dagana vorum við oftast bara 3 tíma í skólanum...þannig að..já róleg vika...skrapp meira segja bara aðeins með Hólmgeiri í vinnunna...og sleikti sólina aðeins meira þar :haha:
Svo í dag var einn kennarinn svo góður að fara með okkur upp á fjöll á skíði! Og þar fékk ég að skarta mínum góður skíðatöktum....sem eru reyndar kannski ekki svo góðir ;)

Veit ekki alveg hvernig ég fór að því að kreysta fram brosið...þar sem skapið var ekki alveg jafn brosandi 8|
Eftir ansi margar rassalendingar, afturábakferðir þegar upp brekkur átti að halda og mikið bölv á íslensku voru skíðinn rifin af og fæturnir notaðir í staðinn...ekki gott skap :^)
En þá var tekin góð 2 tíma nestis- & sólarglápspása...þannig að skapið mildaðist nú aðeins.
En svo tók við leiðin til baka...semsagt niður brekkurnar...ekki gaman...endaði með því eftir að ég hafði labbað niður 2 brekkur að ég settist bara á skíðin og fór sitjandi niður brekkurnar...en þá var reynt að siða mig til og mér gefin nokkur niðurbrekkuskíðaráð af kennaranum..sem var jú norskur og fæddist því með skíði á löppunum og fannst þetta vera svo auðvelt allt saman...en þetta virtist nú virka eitthvað því ég datt bara tvisvar sinnum í næstu brekku :d
En það var nú ekki bara rassinn á mér sem átti góðar stundir með snjónum þar sem að finnsku stelpurnar kannast ekki við fyrirbærið fjall eða brekkur vegna skorts á hæðum og halllendi í heimalandi þeirra...
En jújú...þetta var gaman...þó að rassinn sé aumur...og flest allir aðrir líkamspartar.
Held að ég fari nú að leggja skíðunum samt...svona í tilefni sumarsins :)
Það var líka ansi heitt og mikil sól...þannig að í dag umturnaðist ég í freknu.
Sá reyndar í gærkvöldi að einhverjar óprúðar freknur voru í aðsigi...en núna er freknupartý dauðanz í andlitinu á mér!
Gott í bili...held ég ætli að skella mér í gufu...gá hvort að freknurnar renni ekki af mér :lol:
...og já...Gleðilegt sumar!...Ég og hinn helmingurinn splæstum okkur í feitri súkkulaðiköku í tilefni dagsins 8)

Kv. Helga....ekki fædd með skíði á fótunum




» 7 hafa sagt sína skoðun

20.04.2008 15:29:52 / helgz

Er vorið komið?


Núna held ég að vorið sé komið :d Það er allavega búið að vera sól  núna seinustu daga og bara frekar heitt...meira segja það mikil sól að ég er farin að forðast hana...hún er farin að valda mér hausverk og þreytu svona eins og venjulega :s
En já...nú er ég búin með tvo kúrsa í skólanum...jibbí! Var í norskuprófinu á föstudaginn og við fengum að vita að allir hefðu náð munnlega prófinu þannig að það er mjög líklegt að maður hafi nú náð þessu því skriflega prófið var nú ekki neitt rosalega erfitt :)
Svo er ég búin með annan kúrs sem heitir wildlife management...hann var próflaus...þurftum bara að halda nokkra fyrirlestra og skila skýrslu...og það reddaðizt alveg :)
Þannig að nú eru bara 4 próf eftir...styttist í að skólinn verði bara búinn 8| því það er bara ein og hálf vika eftir í kennslu....svo eftir það verðum við bara að dunda okkur úti...fara í skoðunarferðir, veiða fiska og skoða þá eikkað nánar, hjálpa til við rannsóknarverkefni sem skólinn er með...bara gaman! :d
Í gær skruppum við svo í einn bæ sem er svona klukkutíma í burtu...og hann var alveg þokkalega stór bara...fundum 3 moll meira segja...og H&M sem gladdi mitt litla hjarta mjög mikið!! :)
Töluðum svo bara norsku í búðunum...og fólkið bara skildi okkur...alveg ótrúlegt...höfum kannski eitthvað lært í skólanum :)

Fórum svo í "pikknikk" í dag...fórum í bíltúr og fundum pínulítinn snjólausan blett í skóginum til að borða nestið...rákumst ekki á neina birni :whut:Jæja...man ekki eftir meiru í bili...ætla fara elda fiskibollur í matinn ;)

Bless

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 19:32:42 / helgz

Fleiri myndir!


Jæja....bara láta vita að ég skellti inn fleiri myndum...setti inn nýtt albúm.
Í dag gerðum við heiðarlega tilraun til að leita af björnum og úlfum...en fundum bara spor! Frekar fúlt :s En við reyndum...og erum allavega búin að sjá sporin...og bjarnarsporin eru frekar krúttleg...svona með tásum og allt :)
Já...fórum semsagt í dalinn hérna við hliðina á okkur sem heitir Rendalen, og ég get svo svarið það...það var næstum því vor þar! Jafnvel þó við fórum talsvert langt norður...en neinei það er ennþá snjó hér í Evenstad :frown: En þetta er reyndar einhver snjóakista hérna....þessi staður og svo Finnmörk, sem er by the way næstum því hjá norðurpólnum eða eitthvað, eru snjóþyngstu svæðin í Noregi...gaman að því!
En já semsagt sáum ekki mikið af nýjum dýrum í dag...nema ég...því ég sá RISA maurahrúgu! Alveg ógeðslegt...en fannst það samt mjög merkilegt þar sem ég hef ekki séð maura áður...en mig klæjaði bara af því að horfa á þá.
Reyndar var ég ekki búin að fatta að það væru maurar í skógunum hérna...og rétt áður en við rákumst á maurahrúguna hafði ég hlaupið inn í skóginn til að nota klósettið...og ég get ekki lýst því hversu mikið mig klæjaði eftir að ég fattaði maurana...heilinn á mér fór alveg á fullt...og um stund var ég alveg viss um að ég hefði setið í iðandi maurahrúgu til að létta af mér...
En það slapp...held ég 8|
Jæja...ætla fara blikka bóndann...gá hvort ég geti ekki sníkt eitt stykki tásunudd ;)

Helga...maurétin


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.04.2008 14:05:54 / helgz

It´s friday I´m in love!


Föstudagur!...mikil gleði...vikan búin....eeeeen ekki komið frí...þurfum að mæta í norskutíma bæði á laugard og sunnudag....frekar fúlt :s
Flensan nánast farin....bara smá hósti eftir...alltaf gaman að því.
Ennþá að læra á fullu...spurning hvort maður sé farin að læra of mikið þegar manni er farið að dreyma lærdóminn líka...hreindýr og veiðileyfi voru ansi ofarlega í hausnum á mér í nótt og eltu alla draumana...og svo rumskaði ég eitthvað og þá var ég alveg viss um að eitt stykki hreindýr væri við hliðina á mér...en svo var þetta víst bara Hólmgeir 8|  sem var fínt...örugglega ekki gaman að hafa hreindýr í rúminu hjá manni...
Jæja...ætla fara hita mér te...kannski skelli mér svo út að labba ef ég verð dugleg...

Blissss
Helga....með 10 tær

» 3 hafa sagt sína skoðun

07.04.2008 10:02:34 / helgz

Áhald dagsins....tissjú!


Hvað er málið með þennan snjó!....það bara ætlar ekkert að koma vor.  Það er búið að vera heitt alla seinustu viku...en neinei...núna snjóar bara eins og einhverjum sé borgað fyrir það :frown:
En já ekki mikið að frétt héðan...flensan kom í heimsókn um helgina og er allsráðandi í dag, þannig að áhald dagsins er án efa belju tissjúið mitt...langar helst að skríða í dvala þangað til að hún fer.
Við útlendingarnir fórum út að borða núna fyrir helgi...í bókstaflegri merkingu...við fórum út í skóg og elduðum kvöldmat þar...auðvitað pylsur :lol:
Annars fór helgin bara í lærdóm og flensu...er búin að vera reyna lesa mér eitthvað til um bs verkefni...það gengur mjög hægt...hausinn á mér verður alveg tómur og engar hugmyndir komnar enn...en það kemur vonandi á endanum.
Erum svo að fara til Osló um helgina 18.apríl....týpísk túristaferð örugglega....myndavélin og kortið á lofti :)
Svo styttist í að við förum út til að leita að dvalarstöðum bjarnanna, þeir eru að fara vakna núna á næstunni...vona að við sjáum allavega einn :d og vona að ég verði ekki veik ennþá....
En jæja...hausinn á mér er alveg frosinn svo þetta verður ekki lengra í dag.
Er að spá í að leggjazt upp í rúm og reyna snýta lungunum....

......Ásta mín! Ertu búin að kaupa þér flugmiða :p

Helga....að kafna úr hor


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2008 20:02:48 / helgz

Lærdómur dauðanz!


Hvað hefur maður annað betra að gera nema blogga þegar maður á að vera læra :haha:
Skellti líka inn fleiri myndum frá því að við vorum í eltingaleiknum við elgina...
Já annarz er lítið búið að gerast síðan síðast...helgin fór öll í lærdóm...og munu næstu dagar gera það líka...eða næstu vikur :frown:
Típískur sunnudagur í dag...leti allsráðandi og er búin að vera þreytt í allan dag...veit samt ekki alveg af hverju.
Breyttum klukkunni í dag þannig að nú erum við 2 klst á eftir Íslandi...kannski þess vegna sem ég er þreytt...missti úr klukkutíma í dag :d
Rigning og rok í allan dag...frekar niðurdrepandi veður....samt ekki svona Hvanneyrarrok...bara venjulegt rok, kannski að snjórinn minnki þá aðeins...er alveg komið með smá leið á honum, langar að fara sjá eitthvað grænt svo ég geti farið að skoða nýjar plöntur :o
Reyndar hélt ég að það væri komið vor í síðustu viku og vikunni þar á undan...svo snjóaði aftur + frost...þannig er þetta víst hérna...hlýnar og kólnar til skiptis...kannski bara svipað og heima.

En já vildi samt að ég gæti verið heima í RISA sjóræningjapartýinu sem var haldið í dag...er sko alveg til í að detta í nokkrar tertur...en fæ kannski bara myndir af þeim í staðinn ;)
Þar sem að litla baunin hún systir mín á ammæli í dag nota ég tækifærið og segi:
Til hammó með ammó Unnur! ....náðir loksins að verða 4 ára.... enda búið að bíða lengi eftir því :)  Vona að þú hafir verið glöð með pakkann!



Jæja...ætli að ég haldi ekki bara áfram að læra & borða súkkulaði :lol:
....Hvernig er það....er ekkert að gerazt á Hvanneyri eða??

Ha det bra!


» 6 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 21:06:56 / helgz

Fríið búið

Búmm! og fríið er bara búið...var frekar fljótt að líða held ég...er alveg viss um að það vantaði einhverja daga inn í það.  Skólinn byrjaði aftur í gær með trompi...allir búnir að skella helling af verkefnum á okkur og svo nálgazt í fyrsta prófið! 8|  Þannig að talvan verður besti vinur minn næstu vikur held ég...get kannski röflað við hana á norsku þar sem norskuprófið er bara eftir 20 daga eða svo!
Fengum okkur bíltúr til Svíþjóðar um páskana, Bjössi & Lilja & kó hugsuðu vel um okkur í nokkra daga...mikið slappað af og borðaður góður matur og baðið þeirra notað...takkfyrir okkur :)
Keyptum svo ódýrt öl og tóbak til að hafa með heim....það er svo andsk. dýrt hérna en miklu ódýrara í svíþjóð :haha:
Hún Jóhanna okkar stóð sig bara eins og vel sjænuð Lada...kom okkur alla leið til Svíþjóðar og heim aftur án þess að hiksta...og ljósin virkuðu bara allan tímann! Síðan held ég að hún hafi nú verið eitthvað skotin í löggunni við þegar við keyrðum yfir landamærin, hún hefur örugglega blikkað þá eitthvað því allavega stoppaði hún okkur :o tók samt ekki bjórinn af okkur....mikil gleði við það...en þá var það þannig að hún Jóhanna á víst eftir að fara í skoðun, en þar sem við áttum ekki bílinn þá leyfði hún okkur bara að fara :) annars hefði hún tekið númerin af bílnum á staðnum :s
Vildi að ég væri búin að búa til peníngatré...langar alveg rosalega að fara missa mig í búðarrápi og peníngaeyðslu...ný föt og skór kalla alveg á mig...en fyrst maður er fátækur námsmaður verður maður bara að bíta í tærnar á sér og ganga í sömu gömlu lörfunum aftur&aftur&aftur.

En er búin að komazt að því að norsku mjólkurkusurnar eru örugglega bara helvíti góðar, en eins og flestir vita þá drekk ég ekki mjólk....ekki nema rétt útá morgunkornið og útí kaffið, finnst hún hreinlega ekki góð og mér hefur aldrei fundist hún góð...það kemur fyrir að ég drekk hana með súkkulaðiköku en þá þarf líka að vera gott bragð af henni og mér finnst voða oft eitthvað skrítið bragð af henni. 
En viti menn...ég fór að taka eftir því yfir morgunmatnum núna að ég hef aldrei lent á mjólk með vondu bragði...svo ég gerði tilraun og prófaði að drekka hana bara dræ...og hún var bara alltílæ.  Svo núna er ég búin að drekka hana  þó nokkrum sinnum og hún er bara alveg ótrúlega alltílæ :)  Þannig að nú er mjólk og súkkulaðikex frekar ofarlega á matseðlinum ;) Er núna ákveðin í að skella einni kusu í ferðatöskuna!...Kannzki hægt að skella henni í búr með hinum gæludýrunum í flugvélinni...tíhí...

Jæja held að þetta sé orðið gott í bili...man ekki eftir fleiru fréttnæmu héðan úr Noregi...ég og hinn helmingurinn höfum það bara fínt...það er ennþá vetur & búið að snjóa aðeins meira...hélt um daginn að það væri að koma vor en það var bara plat.
Hmmm...kannski ég hendi inn einhverjum myndum...ekkert voða merkilegar....en myndir þó ;)
Ætla reyna fara troða einhverjum lærdómi í hausinn á mér....

Yfir og út - Skapti & Skafti!



» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 10966
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Þínir flokkar